Jóhannes Björn Lúðvíksson, höfundur bókarinnar Falið vald og samfélagsrýnir, varð bráðkvaddur á heimili sínu í New York borg í Bandaríkjunum að morgni sunnudagsins 13. mars síðastliðinn.
Hann lætur eftir sig einn son, Róbert Jóhannesson, og eiginkonu sína Beth Sue Rose.
Jóhannes Björn lét til sín taka af miklum krafti á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum allt til dánardægurs. Þá var hefur bók hans Falið vald verið lýst sem einni umtöluðustu þjóðmálarýni seinni áratuga.
Hann heillaðist af list skákborðsins ungur að árum og varð Reykjavíkurmeistari, 16 ára gamall. Jóhannes Björn var einn efnilegasti skákmaður sinnar kynslóðar og tefldi á Evrópumóti unglinga í Amsterdam árið 1969.