Jóhanna vill láta hina seku fara í launalaust leyfi

„Klaustursmál“ geta komið upp aftur og aftur ef Alþingi breytir ekki leikreglum sínum. Niðurstaðan nú er ekki boðleg. Í fyrsta lagi er ótækt að Alþingi skipi núverandi eða fyrrverandi þingmenn í nefnd til að fjalla um möguleg brot á siðareglum þingsins.“

Þetta segir Jóhanna Sigurðardóttir fyrrverandi forsætisráðherra. Hún vill að það hafi afleiðingar, telji siðanefnd að þingmenn hafi gerst brotlegir í starfi. Jóhanna leggur til eftirfarandi:

„Ég legg til að skipuð verði siðanefnd í upphafi hvers kjörtímabils, skipuð sérfræðingum utan Alþingis, og að brot á siðareglum hafi afleiðingar fyrir viðkomandi. Mætti hugsa sér að þingmaður, sem brotlegur gerist við siðareglur, verði látinn fara í launalaust leyfi tiltekinn tíma sem eftir lifir kjörtímabils í samræmi við alvarleika brotsins . Það væri liður í að endurreisa virðingu Alþingis.“