Jóhanna Vigdís Arnardóttir verður gestur Kvikunnar hjá Birni Þorláks annað kvöld. Jóhanna Vigdís hefur lagt nótt við dag í hlutverki sínu í söngleiknum Mamma Mía sem slegið hefur öll aðsóknarmet. Þá vakti hún athygli um helgina er hún flutti nýjum forseta afmælissöng með ógleymanlegum hætti.
Í Kviku Björns Þorlákssonar fer söng- og leikkonan yfir ferilinn, sem er afar fjölbreyttur. Jóhanna Vigdís hefur fjöldann allan af prófgráðum, ein er glæný. Þá segir hún söguna af því hvernig hún kynntist eiginmanni sínum, Þorsteini Helga Guðbjörnssyni, en þar kemur hreindýrablóð við sögu! Það mun engum leiðast yfir ítarlegu viðtali við hina geðþekku og hæfileikaríku listadívu sem horfir senn til nýrra verkefna.