Jóhanna: öfgar, vitleysa og fjarstæða – segir ummæli ingu sæland vera ósmekkleg

Heitar umræður hafa átt sér stað um um frumvarp heilbrigðisráðherra um þungunarrof. Atkvæðagreiðslu hefur verið frestað fram í næstu viku. Þingmenn deila enn hart um frumvarpið og það hvort rjúfa megi meðgöngu til loka tuttugustu og annarrar viku. Jóhanna Sigurðardóttir fyrrverandi forsætisráðherra tjáir sig um málið og segir umræðuna komna út í hreina vitleysu. Jóhanna segir:

„Auðvitað er það stórt og mikið tilfinningamál að auka rétt kvenna til þungunarrofs, en umræðan um málið á Alþingi er gengin útí algjörar öfgar og komin út í hreina viðleysu, engum til sóma.“

Segir Jóhanna að ummæli Ingu Sæland séu afar ósmekkleg en Inga sagði meðal annars:

„Ég ætla að taka undir með þeim sem hér hafa sagt áður, það mun engu máli skipta hversu lengi við velkjumst um með þetta í kerfinu, það er markmiðið að þetta verði gert og það hefur þessi salur sannarlega sýnt með frábærum húrra-hrópum og gleðihljóðum þegar við ætlum hér að taka ákvörðun um það að 22 vikna gamalt barn verði drepið í móðurkviði!“

Um þetta segir Jóhanna:

Einn þingmaður ásakar þá þingmenn sem tala fyrir auknum rétti að vilja drepa barn í móðurkviði, sem er vægast sagt afar ósmekklegt.“

Þá segir Jóhanna einnig:

„Annar ber sér á brjóst og segir þetta mesta kvenfrelsismál síðustu 100 árin, sem er fjarstæða. Og sá þriðji spyr hver réttur fósturs sé til að erfa eignir, sem erfitt er að sjá að eigi erindi inní umræðuna.“

Bætir Jóhanna við að endingu:

„Ég held að skynsamlegt væri að róa umræðuna og láta málið bíða næsta þings. Vonandi verður þá mesta geðshræringin yfirstaðin og hægt að ræða málið af meiri yfirvegun.“