Jóhanna hvetur til leiðar pírata

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra í Vinstri stjórninni, hefur blandað sér í baráttuna um stjórnarskrármálið.

Í pistli á facebook kveður Jóhanna sér hljóðs og hefur mál sitt á því að íhaldið og Framsóknarflokkur hafi komið í veg fyrir að ný stjórnarskrá sem samþykkt var í þjóðaratkvæðagreiðslu á síðasta kjörtímabili yrði að veruleika.

Eftir 3ja ára leynimakk í bakherbergjum stjórnmálaflokkanna virðist nú vera að fæðast lítil mús. Eitthvað sem heita má lágmarkssamnefnari flokkanna í auðlindamálum sem litlu mun breyta í raun og gallaðar tillögur um þjóðaratkvæðagreiðslu,” skrifar Jóhanna.

Hvorug þessara hugmynda uppfylla það sem þjóðin krafði þingið um að yrði að veruleika á síðasta kjörtímabili. Auk þess er öll heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar eftir sem unnin var með aðkomu þjóðarinnar og fulltrúa hennar, sem Alþingi hefur verið ófært um að leysa frá lýðveldisstofnun.”

Jóhanna heldur áfram: “Munu stjórnmálaflokkarnir telja sig með þessum tillögum vera búna að þvo hendur sínar af frekari stjórnarskrárbreytingum næstu áratugina eða hvaða fyrirheit munu þeir gefa þjóðinni um framhaldið? Væri ekki rétt að stjórnarandstöðuflokkarnir sameinuðust um tillögu Pírata um stutt þing á næsta kjörtímabili og afgreiða þar stjórnarskrárbreytingar sem 2/3 hlutar fólks í þjóðaratkvæðagreiðslu hefur kallað eftir.”

Ummæli Jóhönnu eru áhugaverð í því ljósi að innan Pírata virðist djúpstæður meiningarmunur hvort þeir eigi að fylgja þeim tillögum sem nefndin hefur náð saman um eða sprengja vinnuna og fara þá leið sem bæði Birgitta Jónsdótir og Helgi Hrafn Gunnarsson hafa talað fyrir. Að hafa stutt þing eftir kosningar og kjósa aftur.