Jóhanna hjólar í Katrínu: „Þetta er ótrúlegt“

Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, segir afstöðu Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra og formanns Vinstri grænna, vera ótrúlega.

„Þetta er ótrúlegt. VG vill ekki stóreignaskatt. ekki nýju stjórnarskránna, ekki auðlindagjald sem þjóðin kaus um í þjóðaratkvæðagreiðslunni 2012 og svo virðast þeir ætla að afhenda íhaldinu heilbrigðisráðuneytið ef ríkisstjórnin starfar óbreytt áfram,“ segir Jóhanna í færslu á Facebook. „Jafnaðarmenn verða að koma í veg fyrir þetta.“

Vísar Jóhanna í viðtal Morgunblaðsins við Katrínu.

240589134_10159287503799178_7237931669009566316_n.jpg

Deilir hún svo færslu Hallgríms Helgasonar rithöfundar sem segir að Samfylkingin sé ekki komin vinstra megin við VG, heldur sé VG komin hægra megin við Samfylkinguna. „Viljum við áfram "staðfasta" og þröngsýna hægristjórn eða nýja opinhuga (openminded) stjórn til vinstri? Eða viljiði verja atkvæðinu í háværustu stjórnarandstöðuna?,“ segir Hallgrímur.