Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sakaði Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra og þingmenn Vinstri grænna um að reyna að firra sig ábyrgð á vanköntum í söluferlinu og reyna að varpa því yfir á Bankasýsluna.
Þetta sagði Jóhann Páll í Silfrinu á RÚV í dag en þar var tekist á um sölu á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka.
„Það kom mér á óvart að í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu kom fram að ráðuneytið hefði ekki aflað upplýsinga um tilboð eða tilboðsgjafa.
Þarna liggur fyrir að ráðherra hirti ekki um að afla þessara upplýsinga en tók ákvörðunina samt. Þarna virðist útboðið hafa verið á einhvers konar sjálfstýringu,“ sagði Jóhann Páll meðal annars um söluna.
Þorsteinn Víglundsson, fyrrum þingmaður Viðreisnar, og Andrea Sigurðardóttir, viðskiptafræðingur, voru einnig gestir í Silfrinu ásamt fleirum. Þau bentu bæði á að ferlið hafi verið kynnt fyrir fjárlaganefnd áður en salan fór fram. Salan hefði svo verið í samræmi við kynninguna.
„Hví komu þessar athugasemdir ekki fram við kynninguna?“ spurði Andrea, sem leiddi líkur af því að stjórnarandstaðan hefði beðið með kvartanir sína þar til eftir að salan fór fram til þess að auka pólitískan ávinning sinn af því að gera hana tortryggilega.
Andrea þvertók fyrir það að þeir sem fengu að taka þátt í útboðinu hafi verið handvaldir. Hún sagði uppboðið hafa verið opið og aðgengilegt öllum fjárfestum.
Mikil reiði hefur ríkt um útboðið á Íslandsbanka eftir að listi yfir kaupendur var birtur. Á honum mátti sjá ýmis kunnuleg nöfn, þar á meðal föður fjármálaráðherra og viðskiptamenn sem hlutu dóma fyrir fjármálamisferli á tíma efnahagshrunsins.