Jóhann gunnar orðið fyrir aðkasti vegna fatavals

 

„Það virðast ekki allir hafa umburðarlyndi fyrir því að aðrir séu óhræddir að klæðast öðru en svörtu og fólk stimplað hitt og þetta, allt eftir því hvernig það klæðir sig,“ segir Jóhann Gunnar Arnarsson, einn dómara í þættinum Allir geta dansað, sem segist hafa orðið fyrir aðkasti fyrir fataval sitt. Jóhann Gunnar, eða Jói eins og hann er kallaður, hefur vakið mikla athygli fyrir glæsilegan klæðaburð og skemmtilega framkomu, en hann er fagurkeri fram í fingurgóma.

Jói segir í Fréttablaðinu í dag að nóg sé að gera þessa dagana, hvort sem er í jólastússi eða vinsælu dansþáttunum sem eru nú í beinni útsendingu á föstudagskvöldum.

„Það er alltaf eitthvert stúss í kringum fatnað og skó fyrir þættina. Lífið væri svo leiðinlegt ef maður væri alltaf í svörtum skóm. Það er erfitt að finna líflegan og skemmtilegan fatnað hér á landi svo ég hef augun opin þegar ég fer til New York sem ég geri árlega. Ég tek mér alltaf góðan tíma í að velja réttu dressin,“ segir hann.

„Þetta eru eiginlega svona nammibúðir fyrir mig í New York því úrvalið er svo fjölbreytt. Því miður hafa íslenskir karlmenn verið hálfhræddir við skrautleg eða litrík föt. Ég vona að það sé að breytast smátt og smátt. Ég er farinn að sjá fleiri karlmenn í skemmtilegum jökkum,“ segir Jói sem hefur orðið fyrir aðkasti vegna fatavals.

Viðtalið við Jóa má lesa hér.