Íslenska tónskáldið Jóhann Jóhannsson hefur verið tilnefndur til Bafta-verðlaunanna í annað sinn fyrir kvikmyndatónlist sína, að þessu sinni fyrir músíkina í myndinni Siciro eftir Denis Villeneuve.
Tilnefningarnar voru kynnatr í morgun og er Jóhann í hópi með heimskunnum lagahöfundum á borð við Ítalann Ennio Morricone og Ameríkanann John Williams, en aðrir tilnefndir eru Thomas Newman, Ryuichi Sakamoto og Carsten Nicolai.
Jóhann var einnig tilnefndur til Bafta í fyrra fyrir tónlist sína við myndina The Theory of Everything en vann þá ekki. Hann vann hins vegar Golden Globe í fyrra og var einnig tilnefndur til Óskarsverðlaunanna.