Stangveiði með besta móti í sumar

Stangveiði er með besta móti á þessu sumri í langflestum ám, hringinn í kringum landið sem virðist mega rekja til góðra skilyrða í hafinu umhverfis Ísland.

Langá á Mýrum er dæmi um laxveiðiá sem heldur betur hefur tekið við sér í ár í samanburði við síðasta sumar sem var ekki svipur hjá sjón hvað veiðina snertir. Það var því hýrt yfir veiðimönnunum sem þeir Gunnar Bender og Steingrímur Jón Þ\orðarson tóku tali á bökkum Langár í veiðiþættinum Við árbakkann á Hringbraut í gærkvöld