John Fitzgerald Kennedy var 35. forseti Bandaríkjanna en hann gegndi því embætti frá 20. janúar 1961 þar til hann var myrtur í borgini Dallas í ríkinu Texas hinn 22.nóvember 1963.
Hann fæddist hinn 29. maí árið 1917 og eru því hundrað ár í dag frá fæðingu hans. Kennedy var næstyngstur til að gegna embætti forseta Bandaríkjanna þá 43 ára.
Hann þótti hófsamur í skoðunum og viljugur til friðsamlegra lausna á vandamálum sem meðal annars sýndi sig í Kúbudeilunni. Rannsókn á morði Kennedy bendir til þess að banamaður hans hafi verið einn að verki.
rtá