Theresa May hefur valið nýjan innanríkisráðherra í stað Amber Rudd sem sagði af sér í gær eftir að hafa leynt breska þingið upplýsingum um innflytjendamál.
Nýi ráðherrann er Sajid Javid, að því er kemur fram í tilkynningu frá skrifstofu forsætisráðherra í Downingstræti 10.
Rudd sagðist hafa blekkt þingheim „óviljandi“ því hún hafi ekki þekkt til áætlanna sem lágu fyrir um brottvísanir innflytjenda. The Guardian birti hins vegar bréf sem þar sem meðal annars kom fram að Rudd stefndi að því að koma í það minnsta 10 prósent fleiri innflytjendum úr landi, en áður hafði komið fram.
Sajid Javid MP @SajidJavid becomes Secretary of State for the @UKHomeOffice
— UK Prime Minister (@10DowningStreet) April 30, 2018