Járnglófi inni í silkihanska

Erindrekar Bandaríkjanna víða um heim eru nú á faraldsfæti að loknu stefnumóti ríkisoddvata G20 ríkjanna í Hamborg.

Bandaríkin vilja að bandarískir erindrekar útskýri nána fyrir helstu bandamönnum hvað Donald J. Trump sagði í Hamborg og hvað hann létt ósagt og hvað forsetinn áformar að gera og hvað hann mun láta ógert.

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna Rex Tillerson fór þegar að loknu stefnumótinu i Hamborg til Kæunugarðs í Úkraínu. Þar átti hann fund með forseta Úkraínu. Rex Tillerson áréttaði þar að Rússland skyldi ekki vænta nokkurra tilslakana á bandarískum viðskiptaþvingnum. Úkraínumönnum létti við þessi ummæli.

Hér tala Donald J. Trump og Rex Tillerson á sömu nótum. Það voru einmitt misvísandi skilaboð frá Bandaríkjunum í forsetatíð forvera Donald J. Trump í embætti sem komu í uppnám samkiptum við bandamenn Bandaríkjanna. Og voru vatn á myllu óvina Bandaríkjanna og bandamanna þeirra.

Stjórnmálaskýrendur segja að andstæðingar forseta Bandaríkjanna á þjóðþingi Bandaríkjanna hafi slegið feikna vindhögg þegar þeir staðhæfðu að Donald J. Trump forseti myndi aflétta öllum viðskiptaþvingunum Bandaríkjanna gegn Rússlandi.

 

 

 

Nánar www.thetimes.co.uk/redbox

[email protected]