„Kann einhver skýringu á því að 1100 metra göng kosti 3,1 milljarð?!?“
Svo spyr Þóroddur Bjarnason, fyrrum stjórnarformaður Byggðastofnunar og prófessor í félagsvísindum við Háskólann á Akureyri, vegna frétta um stórhækkaðan kostnað við veggöng vegna stóriðju PPC á Bakka á Húsavík. Þóroddur spyr svo á sérstökum umræðuþræði um byggðamál á facebook.
Stofnkostnaður vegna stóriðjunnar fellur að hluta á almenning vegna sérstakra ívilnana sem Alþingi samþykkti á síðasta kjörtímabili. Áður hafði Vegagerðin reiknað út að göngin myndu kosta 1,8 milljarða.
Þingmaður Norðausturkjördæmis, Bjarkey Gunnarsdóttir VG, bendir í umræðunni á að samkvæmt skýringum Innanríkisráðuneytis sé aukinn kostnaður m.a. vegna styrkingar ganganna vegna sérstaks jarðskjálftaálags. Þá þurfi að færa þurfti göngin nær sjó og útí sjó þar sem þykkt lausefna sé mikil auk þess sem þingmaðurinn nefnir fleiri þætti.
Vísindamenn hafa varað við uppbyggingu stóriðju á Bakka vegna jarðskjálftahættu en verksmiðja PCC verður staðsett á svæði sem hluti jarðfræðinga telur ekki öruggt með liti til líkinda á stórskjálfta.