Jarðskjálfti af stærðinni 2,9 á Richter-skjala skók jörð skammt frá Húsavík laust eftir miðnætti og varð hans vel vart í byggð.
Upptökin voru við Héðinshöfða sem er um fjóra kílómetra norðaustan við bæinn, ekki langt frá þeim stað sem fyrirhuguð stóriðja á Bakka rís.
Samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofunnar fannst skjálftinn vel á Húsavík og bárust tilkynningar um skjálftann til stofnunarinnar. Þá kemur jafnframt fram að ekki hafi mælst eftirskjálftar á svæðinu í nótt.