Gunnar Atli Fríðuson, framkvæmdastjóri Jarðbaðanna við Mývatn, afhenti í dag Rögnu K. Marinósdóttur, framkvæmdastjóra Umhyggju – félagi langveikra barna, 500.000 króna styrk.
Við afhendinguna sagði Gunnar Atli að fyrirtækið styrkti reglulega góð málefni og það væri þeim mikil ánægja að geta styrkt langveik börn á Íslandi og því hefði Umhyggja orðið fyrir valinu.
Jarðböðin við Mývatn eru opin daglega, allt árið og þangað komu á síðast ári um 150.000 gestir til að njóta þess sem jarðböðin hafa á upp að bjóða.
Umhyggja færir Gunnari Atla og Jarðböðunum við Mývatn sínar bestu þakkir segir í frétt af afhendingunni á umhyggja.is.