Vilhjálmur Bjarnason, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, úthúðar flokknum í grein í Morgunblaðinu. Fleiri deyi frá flokknum en fæðast til hans. Þá sé flokkurinn stefnulaus og með fylgi á við portúgalskt léttvín en á árum áður hafi hann nálgast viskí að styrk. Hvað hefur gerst?
Vilhjálmur segir: „Fjármálaráðherra tíundar þá sigra sem leitt hafa til þessa ástands. Það er ekki vanþakklæti kjósenda að snúa baki við Sjálfstæðisflokknum, heldur eru væntingar ekki uppfylltar. Einhver örvænting snýr fólki til fylgis við aðra flokka, Samfylkingu eða Miðflokk, sem hegða sér með óráðshjali eins og pólitískir vinda blása hverju sinni. Nægir þar að nefna óráðshjal um orkumál.“
Þá gagnrýnir Vilhjálmur að flokkurinn hafi afturkallað aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Þar hefur formaður flokksins, Bjarni Benediktsson tekur algjöra ubeygju. Þann 13. desember árið 2008, lýstu þeir félagar, Bjarni og Illugi Gunnarsson því yfir í Fréttablaðinu að þeir vildu að Ísland myndi hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ekki nóg með það, þá vildu þeir kumpánar einnig bera slíkt undir þjóðina í atkvæðagreiðslu. Það var þá og nú er enginn áhugi á slíku fyrir hendi, hvað þá að leyfa þjóðina að segja sína skoðun. Vilhjálmur segir þá ákvörðun að styðja afköllun hafi skaðað flokkinn og þannig bæði styrkt Viðreisn og Miðflokkinn. Hann segir:
„Til hvers í ósköpunum þurfti Sjálfstæðisflokkurinn að vera þátttakandi í því að styðja afturköllun aðildarumsóknar að Evrópusambandinu? Vissulega var enginn möguleiki á því að umræða um aðildarumsókn kæmist á dagskrá Alþingis. Sofandi aðildarumsókn gerði ekkert mein. Afturköllun aðildarumsóknar að Evrópusambandinu skapaði grundvöll fyrir Viðreisn. Frumkvæði að afturköllun kom frá þeim er síðar urðu Klausturmunkar Miðflokksins.“
Þá segir Vilhjálmur að þingmenn Sjálfstæðisflokksins séu mestan part ósýnilegir og fáir viti hver þessir litlausu þingmenn eru í dag. Vilhjálmur bætir við:
„Þeir þurfa að spyrna í botninn. Eða er betra að hafa þá í kafi áfram? Það eru innan við tvö ár til næstu kosninga. Hvað ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að bjóða upp á annað en vín í búðir? Það er af nægu að taka.“
Vilhjálmi tekst að finna alla vega eitt jákvætt atriði og telur efnahagsstöðu góða út frá lágri verðbólgu. Hann undrast hins vegar að Samfylkingin skuli dafna við slíkar aðstæður. Hann segir um Loga Einarsson formann Samfylkingarinnar:
„Við þessi skilyrði er allt í einu flokkur undir forystu fúllynds Akureyrings að auka fylgi sitt. Algerlega óverðskuldað.“
Þá segir Vilhjálmur undir lokin:
„Það eru innan við tvö ár til næstu kosninga. Hvað ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að bjóða upp á annað en vín í búðir? Það er af nægu að taka,“ segir Vilhjálmur og bætir við á öðrum stað:
„Styrkleiki flokksins felst ekki í því að bjóða upp á fleiri vínfrumvörp eða náttúrupassa. Það er enginn vínskortur í landinu.“