Jafnréttið dró moore til íslands

Hinn heimskunni heimildarmyndagerðarmaður Michael Moore hefur dvalið hér á landi síðustu daga við gerð heimildarmyndar um jafnréttismál. Hann er sagður hafa heillast af þeim upplýsingum sem hann fékk um stöðu jafnréttismála á Íslandi og viljað fyrir vikið taka upp drjúgan hluta af nýrri mynd sinni hér á landi. 


Michael Moore er ekki einasta einn kunnasti þjóðfélagsrýnir seinni ára heldur og einnig sá umdeildasti. Myndir hans hafa margar hverjar stungið á kýlum samfélagsins svo undan hefur verkjað, ekki síst í heimalandi hans, Bandaríkjunum. Hann fékk Óskarsverðluanin fyrir mynd sína Bowling for Columbine árið 2002 en álíka þekkt er mynd hans Fahrenheit 9/11. 


Moore hefur dvalið hér á landi frá því fyrir helgi, en fer væntanlega af landi brott í dag, vel nestaður í næstu mynd sína um stöðu jafnréttismála í henni veröld.