Jákvæð áhrif af afnámi fjármagnshafta

Matsfyrirtækið Moody´s birti í gær frétt um að afnám fjármagnshafta hafi jákvæð áhrif á lánshæfi ríkissjóðs og fjármagnsgreirans. Breyttar reglur afnema nærri allar hindranir á gjaldeyrisflæði yfir landamæri. Höft eru samt enn á afleiðuviðskipti án varna. Þá eru höft á aflandskrónueigendur sem standa utan síðasta samkomulags. Moody´s væntir þess að stjórnvöld og Seðlabanki Íslands séu nú tilbúin til að innleiða frekari þjóðhagsvarúðarráðstafanir ef þær reynast nauðsynlegar til að takmarka áhættu vegna þenslu í ferðaþjónustu.