„Orkupakkinn senn afgreiddur. Hefjum þá umræðuna um það sem skapar okkur mesta sérstöðu: OKUR-pakkann! Ótæpilegt OKUR skipar Íslendingum í skammarkróka allra þeirra sem fjalla um dýrustu lönd heims.“
Þetta segir Jakob Frímann og bætir við að okur sé að finna á Íslandi við hvert fótmál og það megi rekja til þingmanna sem skáldi sífellt upp nýjar álögur.
„Kr. 1.700 fyrir bjórglas á bar þegar raunverulegt innkaupsverð er kr. 170 segir allt sem segja þarf. Það er okrað við hvert fótmál, hvern bensín-, bjór- og mjólkurlítra, hvert bílastæði, hvern kjöt- og grænmetisbita o.s.frv.“
Jakob segir að mesti okrarinn sé ríkið sjálft „sem alls staðar smyr á og/eða klípur af, enda 63 þingmenn búnir að vera á fullu við það áratugum saman að skálda upp nýjar álögur til að hengja um háls þegnanna með þeim afrakstri að um 70% af launum venjulegs fólks hverfur í gin ríkis-ljónsins með einum eða öðrum hætti.“
Segir Jakob að næsta skref sé að finna nýjar skapandi leiðir til tekjuöflunar og lækka álögur á almenning til muna. Það ætti að vera eitt af forgangsmálum Íslendinga. Jakob segir:
„Getum við ekki sammælst um þetta gott fólk sem forgangsmál næstu missera?“