Stjörnublaðamaðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson er í andófi gegn fitusmánun ig tjáir sig opinskátt um vaxtarlag sitt á Facebook síðu sinni í kvöld.
Jakob lýsir því í pistlinum hvernig hann naut lífsins í Noregi á dögunum og öllum þeim kræsingum sem hann komst í hjá nágrönnum okkar.
Við heimkomuna segist Jakob hafa verið kominn í þriggja stafa tölu í fyrsta sinn.
„Ég mæti sterkur til leiks inn í aðventuna. Hef sjaldan eða aldrei verið feitari, orðinn 100 kíló, takk fyrir kærlega,“ segir Jakob í pistli sínum.
Við heimkomuna hafi Jakob fljótlega verið búinn að borða allt úr jólanammiskápinum og því væri þörf á nammileiðangri í Costco.
Til þess að klæða kílóin af sér er Jakob búinn að kaupa jakkaskyrtu í stærri stærð sem hann líkir við óléttumussu.
Í færslunni sem sjá má hér fyrir ofan óskar Jakob eftir stuðningi og segir pistilinn vera um leið andóf gegn fitusmánun.