Stjörnublaðamaðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson birti „rándýra“ mynd af sér og Kjartani Atla Kjartanssyni íþróttafréttamanni á skrifstofunni í Vodafone-höllinni á Suðurlandsbraut þar sem þar sem Vísir og Stöð 2 eru til húsa.
Jakob segir á Facebook að þeir séu að horfa á chartið, um er að ræða forrit sem leyfir blaðamönnum að fylgjast með netumferð á skjá á veggnum.
Margir gefa þeim góða einkunn. Einn segir: „Rauður logi á milli ykkar.“ Annar segir: „Alvöru menn, og svona líka fallegir.“
Máni Pétursson á X-inu segir: „Tveir af okkar bestu mönnum.“
Þá kom Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, og sagði: „Ugly as shit.“ Eða: „Ljótir sem skítur.“
Hann tók þó undir með Mána: „Klárlega tveir af okkar bestu (en ekki fallegustu).“
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Kári fer hörðum orðum um Vodafone-menn. Fyrr í þessum mánuði mætti hann í Bítið á Bylgjunni og sagði við Heimi og Gulla:
„Ég held að þið drullusokkar tveir ættuð að fara að hreyfa ykkur reglulega,“ sagði Kári og uppskar mikinn hlátur þeirra félaga. „Það getur vel verið að það hafi áhrif á heilsu ykkar, en þið verðið ekki fallegri fyrir vikið, svo mikið er víst. Ég hefði ráðlagt ykkur að vera frekar í útvarpi heldur en sjónvarpi.“
Jakob sagði að honum þætti Kári fallegur maður: „Nú telst þú seint smáfríður, jafnvel slærð út í að geta talist stórgerður en það breytir ekki því að mér finnst þú gullfallegur.“