Sjónvarpsþátturinn Kíkt í skúrinn, sem er bíladelluþáttur af bestu gerð heldur sig fyrir norðan í kvöld, en þá ljúkast upp dyrnar hjá einum magnaðasta bílamanni Íslands, Jagúar-Jóni - og nú sýnir hann áhorfendum sjálfa jagúardeildina.
Umsjónarmaður þáttanna, Jóhannes Bachmann segir að enginn bílavinur megi missa af þessari heimsókn, en í henni eru skoðaðir bílar sem Jón hefur handsmíðað nánast frá grunni og viti menn; smíðin er einstök og handbragðið eftir því. Fáir hafa fengið að sjá þessa dýrgripi með eigin augum en allt handbragð er nánast fullkomið og ekki fræðilegt að sjá neitt sem út af ber, ekki einu sinni fínistu rispur, hversu vandlega sem skoðað er. Annar eins bílasmiður er vandfundinn.
Í þættinum er einnig farið á Landsmót Fornbílaklúbbsins á Selfossi um síðustu helgi, sem var hin glæsilegasta. Þorgeir Kjartansson, formaður klúbbsins er tekinn tali og Jói Bachmann svífur líka á Rúnar Sigurjónsson en hann er með magnaðan Chevrolet 1931 sem er eins og nýr frá umboðinu.
Bíladelluþátturinn Kíkt í skúrinn er frumsýndur klukkan 20:30 í kvöld