Jafnvirði nýs spítala í brúarlán

Vitað er að Geir H. Haarde og Davíð Oddsson stóðu saman að 500 milljóna evra láni til Kaupþings. Það eru miklir peningar, jafnvirði nýs Landspítala. Lánið var brúarlán til örfárra daga. Það var ekki endurgreitt og verulega mikið almannafé tapaðist. Lánveiting var á ábyrgð Seðlabankans.

Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóri Kaupþings, skrifaði í október 2014: 

„Það voru óvenjulegir tímar í byrjun október 2008. Frágangur lánsins til Kaupþings var einnig óvenjulegur þar sem Seðlabanki Íslands millifærði einfaldlega 500 milljónir evra til Kaupþings mánudaginn 6. október eftir samtal um lánveitinguna milli mín og Davíðs Oddssonar, formanns bankastjórnar Seðlabankans. Engin lánaskjöl voru undirrituð og Seðlabankinn gekk ekki frá veðsetningu FIH bankans til sín.“

Þetta er hreint makalaust. Allir þessir peningar, engin skjöl, ekkert veð, allt gert eftirá.

„Það var svo ekki fyrr en á næstu dögum á eftir að Seðlabankinn fór fram á það við okkur að við gengum frá lánaskjölum og veðsetningu FIH bankans vegna lánveitingarinnar. Það gerðum við stjórnendur Kaupþings að sjálfsögðu eins og um hafði verið rætt en þá var búið að millifæra lánsfjárhæðina í heild sinni til Kaupþings,“ skrifaði Hreiðar Már.

-sme