Jafnvel togarar breytast í hótel

Hug­mynd­ir um fljót­andi hót­el við Reykja­vík­ur­höfn hafa verið kynnt­ar Faxa­flóa­höfn­um en það er fyr­ir­tækið Flostel sem bar upp er­indið og vill reka hót­el við gömlu höfn­ina.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag þar sem Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxaflóahafna staðfestir áformin: \"Þeir kynntu fyr­ir okk­ur áætlan­ir sín­ar um að festa kaup á ís­fisk­tog­ar­an­um Bjarti NK-121, sem er í eigu Síld­ar­vinnsl­unn­ar í dag, og breyta í fljót­andi gisti­heim­ili,“ seg­ir Gísli í blaðinu en er­indi Flostel var hafnað af stjórn Faxa­flóa­hafna, hvað svo sem síðar verður.

\"Mönn­um leist ekki á þá hug­mynd að festa skipið við Eyja­slóð úti á Granda og mál­inu hafnað á þeirri for­sendu. Hins veg­ar er ekki úti­lokað að það geti orðið af þess­ari hug­mynd en þá þyrfti að finna skip­inu ann­an stað og mér var falið að hafa sam­band við Flostel og ræða frek­ar við þá.“