Björt Ólafsdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, segir ekkert undarlegt við náið samstarf Bjartrar framtíðar og Viðreisnar. Hún segir stefnur flokkanna það áþekkar.
Aðspurð segist Björt allt eins sjá fyrir sér nánar samstarf án þess að til sameiningar flokkanna komi.
Björt segir ennfremur að með svo náinni samvinnu tveggja flokka hafa staða beggja flokka styrkst umtalsvert.
Björt segir ennfremur að hún hafi aldrei verið spennt fyrir Lækjarbrekkukvartettinum og því útspili Pírata.
Auk hennar ræðir Brynjar Níelsson um stöðuna í stjórnmmálunum.
Viðtalið við Björt og Brynjar er á dagskrá Þjóðbrautar í kvöld þegar klukkan er rétt um 21:30.