Enn eitt óveðrið sækir landið heim á morgun eftir fremur aðgerðarlítið veður í dag miðað við það sem verið hefur. Spáin er skýr: Það gengur í austan ofsaveður um allt land á morgun, sums staðar jafnvel fárviðri, einkum seinnipartinn og um kvöldið.
Veðrið verðu einna verst undir Eyjafjöllum og í Öræfasveit.
Heldur hlýnar svo á þriðjudag.
Gærdagurinn var annasamur hjá björgunarsveitum landsins. Víða var þá töluverð ófærð og fékk fjöldi ökumanna aðstoð björgunarsveitarmanna. Verst var ástandið á Suðvesturhorninu, á svæðinu frá Brynjudal í botni Hvalfjarðar suður í Krísuvík og á Suðurstrandavegi. Þar sátu tugir bíla fastir og var ástandið víða erfitt. Á Kjalarnesi var settur upp lokunarpóstur og um tíma myndaðist þar nokkuð stór umferðarhnútur. Var gripið til þess ráðs að beina umferðinni að Klébergsskóla þar sem ökumenn og farþegar fengu inni.
Einnig voru ökumenn aðstoðaðir á Lyngdalsheiði, Jökuldal, Þingvöllum, við Flúðir og við Vopnafjörð.
Auk þess að aðstoða ökumenn hafa björgunarsveitir sinnt lokunarpóstum en Vegagerð og lögregla hafa víða lokað vegum fyrir umferð og er ljóst að slíkar ráðstafanir hafa komið í veg fyrir mikinn vanda í gær og fyrradag.