Tíunda árið í röð trónir Ísland á toppi lista Alþjóðaefnahagsráðsins yfir ríki þar sem kynjajafnrétti mælist mest. Ísland hefur náð að brúa rúmlega 86 prósent kynjabilsins hér á landi, sem er mest allra ríkja samkvæmt skýrslu Alþjóðaefnahagsráðsins. Á eftir Íslandi eru Noregur, Svíþjóð og Finnland efst á listanum. Skýrslan var birt í morgun og úttektin nær til nær allra landa heimsins og leggur mat á jafnrétti kynja í stjórnmálum, menntun, atvinnu og heilbrigði.
Bakslag í stjórnmálaþátttöku kvenna
Ísland mældist með 87 prósent í skýrslu Alþjóðaefnahagsráðsins á síðasta ári og hefur því farið eilítið aftur. Þegar kemur að stjórnmálaþátttöku kvenna stendur Ísland sig best allra ríkja en þó er enn 33 prósent bil á milli kynjanna þegar kemur að þátttöku í stjórnmálum hér á landi. Í skýrslunni segir að bilið hafi stækkað hér á landi á síðasta ári en það er m.a. vegna þess hve konum fækkaði á Alþingi í síðustu Alþingiskosningum. Ísland mælist einnig með lægsta launamisrétti kynjanna en í skýrslunni segir að Ísland eigi enn langt í land þegar að það kemur að konum í stjórnunarstöðum fyrirtækja.
Nánar á
https://kjarninn.is/frettir/2018-12-18-jafnretti-kynjanna-mest-islandi-tiunda-arid-i-rod/