Jafnrétti allra, ekki bara kynjanna

\"Jafn­rétti snýst ekki bara um jafn­rétti kynj­anna. Við vilj­um jafn­rétti fyr­ir alla,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á flokks­ráðsfundi VG í dag - og vísaði þar meðal annars til stöðu innflytjenda á Íslandi.. 

Og hún bætti við: \"Það eru al­veg nóg­ir sem tala um aðgrein­ingu milli okk­ar. Þetta er risa­verk­efni sem við get­um öll verði sam­mála um að fara í,“ sagði Katrín ennfremur, en ný­leg­ar frétt­ir af stöðu inn­flytj­enda, barna jafnt sem full­orðinna eru slá­andi, að hennar sögn.

Hún vísaði meðal ann­ars til árás­ar­inn­ar sem ung­ur hæl­is­leit­andi varð fyr­ir á Litla-Hrauni, frá­sagna kvenna af er­lendu bergi brotnu um mis­mun­un og of­beldi í sam­fé­lag­inu í kjöl­far #met­oo umræðunn­ar.