Færeyska ríkisstjórnin féll í þingkosningunum sem fram fóru í gær. Svo fór eins og kannanir höfðu bent til; Jafnaðarflokkurinn er orðinn stærsti flokkurinn á færeyska þinginu eftir kosningarnar, með átta þingmenn af 33.
Flokkurinn fékk rúmlega 25 prósent atkvæða og bætti við sig tveimur mönnum. Tjóðveldi er næst stærstur með sjö þingmenn en flokkurinn bætti við sig einum í kosningunum.
Sambandsflokkurinn, flokkur Kaj Johannessen, lögmanns Færeyja tapaði tveimur þingmönnum sem og samstarfsflokkur hans í ríkisstjórn, Fólkaflokkurinn.
Aksel Johannesen, leiðtogi jafnaðarmanna, sagði í samtali við Kringvarpið í morgun að hann ætlaði sér að reyna að mynda samsteypustjórn núverandi stjórnarandstöðuflokka.
Jafnaðarmenn unnu í færeyjum
Fleiri fréttir
Nýjast