Sjónvarpsstöðin Hringbraut er eins mánaðargömul í dag, en hún fór í loftið með umtöluðu viðtali við frú Vigdísi Finnbogadóttur að kveldi 18. febrúar síðastliðinn. Við undirbúning stöðvarinnar var lögð áhersla á að jafn margar konur og karlar stjórnuðu þáttum stöðvarinnar, sem gengið hefur eftir, svo og að jafnt kynjahlutfall yrði á meðal pistlahöfunda á hringbraut.is sem birtist á netinu 10 dögum eftir að sjónvarpsstöðin hóf starfsemi.
Þegar litið er í kynjabókhald Hringbrautar að mánuði liðnum er staðan þessi: 58 konur hafa verið viðmælendur í þáttum Hringbrautar á móti 59 körlum. "Við erum stolt af þessum tölum," segir Sigmundur Ernir Rúnarsson dagskrárstjóri Hringbrautar og ritstjóri samnefnds vefjar. "Fjölmiðlar eiga að endurspegla samfélagið eins og það er - og það vill svo til að þar er að finna jafn margar konur og karla. Þetta er nú ekki flóknara en það."
Hringbraut mun eftirleiðis birta mánaðarlega tölur úr kynjabókhaldi sínu.