Pétur Hannesson, yfirlæknir á röntgendeild Landspítalans segir á ruv.is í morgun að starfsemi jáeindaskannans sem Íslensk erfðagreining ákvað að kaupa fyrir spítalann árið 2015 geti farið af stað innan skamms.
Fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir því að taka mætti tækið í notkun um miðjan september árið 2016, en þær hafa ekki staðist, né heldur áætlanir sem gerðu ráð fyrir því að skanninn yrði tekinn í notkun síðasta haust og janúarmánuði síðastliðnum.
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, lýsti því í samtali við DV um helgina að hann væri pirraður yfir því hve lengi verkið hefði dregist - og talaði þar um \"drullusokkshátt.\"
„Af og til spyr ég um þetta, því mér finnst þetta vera orðinn mjög langur tími. Eiginlega alveg ótrúlega langur og mér finnst þetta með algjörum ólíkindum. Ég hélt að þetta yrði komið í notkun fyrir ári eða um það bil,“ sagði Kári við DV.