„jæja, nú er kallinn kominn á bekk skattsvikara, loksins...“

Héraðssaksóknari hefur ákært fjárfestinn Bjarna Ákason fyrir meiriháttar brot gegn skattalögum með því að hafa stungið um 44 milljónum króna undan skatti. Fréttablaðið greindi frá málinu í gær og tjáði Bjarni sig um það á Facebook í kjölfarið. 

Hér má lesa færslu Bjarna:

„Jæja, nú er kallinn kominn á bekk skattsvikara, loksins...
En nei ég er ekki skattsvikari eins og Héraðstubbur bakari er að reyna halda fram.
Hér er verið að gera tilraun nr. 2 fyrir dómstólum að koma því á mig, en fyrstu tilraun var vísað frá.
Þannig er mál með vexti að skattaárið 2007 er talið fram á bæði mig og fyrirtæki í minni eigu sömu tekjum.
Endurskoðendur mínir bentu mér á þessi mistök og sendu í kjölfarið bréf til RSK og báðu um leiðréttingu á þessum
mistökum sínum.
Ríkisskattstjóri tók þessu rólega meðan hann var að pæla í þessu en ákvað að leiðrétta fyrirtækið en ekki mig.
Ákvað svo á endanum að þetta væri allt saman tekjuskattur en ég hafði þó áður borgað fjármagnstekjuskatt
af þessum tekjum. Þetta tók þá sex ár að komast að þessari niðurstöðu og þurfti ég að greiða
gríðarháar upphæðir svo háar að ég þurfti að selja eignir og borga því enn meiri skatta til að borga meinta skatta.

Yfirskattanefnd (2019) komst svo síðar að þeirri niðurstöðu að stór hluti af þessu gæti ekki talist til tekjuskatts
og var Tollinum því gert að greiða mér góðan hluta til baka og voru beðnir að um að úrskurða aftur vegna þess að
það ætti eftir að draga skattana frá sem ég hafði greitt af þessu nokkrum árum áður.
Ríkisskattstjóri laumaði svo stórri upphæð inn á reikning félagsins án skýringa né úrskurðar.
Í millitíðinni áður (2017) sendi RSK þetta í skattrannsókn sem endar svo hjá Hérðasstubbi sem ætlar núna
að leika sama leikinn út af sömu krónunum.

Þetta er svo skrýtið því ekki var ég að færa fé á milli staða né stela vaski eða jafnvel
skjóta þessu til Karabíska hafsins.
Nei þetta bara stóð á mínum reikningum og bað ég bara um leiðréttingu sem þróaðist svo í þessa vitleysu.
Allar tekjurnar sem ég vann mér inn á Kaupmannahafnarárunum (2004-2007) löngu farnar og rúmlega það því ekki eru lögmenn
ódýrir þessa dagana.
Nú hefur Skatturinn þurft að leiðrétta þetta tvisvar og einu sinni hefur þessu verið vísað frá rétti en það er bara haldið áfram í boði ríkisins.

Þegar Héraðstubbur hefur lokið sér af, hvenær sem svo það gerist þá bíður skaðabótamál á hendur ríkinu
fyrir það sem ríkið hefur þegar verið gert afturreka með í þessari leiðréttingu sem ég bað um fyrir 8 árum.

En annars allir bara nokkuð góðir hér í úthverfum Höfuðborgarinnar.“