"Minna en helmingur launahækkunar millitekjufólks situr eftir í vasa þess," samkvæmt orðum Björns Brynjúlfs Björnssonar hagfræðings Viðskiptaráðs Íslands sem hann lét falla í samtali við Huldu Bjarnadóttur í viðskiptaþættinum Hringtorgi fyrr í vikunni. Hann sagði þar stjórnvöldum vera í lófa lagið að liðka fyrir kjaraviðræðum með því að innleiða breytingar á þessu í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins.
Björn Brynjúlfur sagði ennfremur að jaðarskattar á millitekjufólk væru rúmlega 50% og hefðu neikvæð áhrif á meðallaun og vinnuframlag. Þá væri virðisaukaskattskerfið á Íslandi uppfullt af undanþágum sem væri þvert á óskir viðskiptalífsins um að bæta íslenska skattkerfið með aukinni skilvirkni, einfaldleika, samkeppnishæfni og stöðugleika.
Lítill sparnaður Íslendinga hefur verið langvarandi vandamál. Björn Brynjúlfur sagði í þættinum að það sæti ekki furðu; skattlagningin á sparnað sé enda yfir 70% hérlendis, sem sé það hæsta á Norðurlöndunum. Þá taki skattar á fjármagnstekjur ekki tillit til verðbólgu og leggist því þungt á allan sparnað.