Fyrrverandi fótboltamaður og Austfirðingurinn Ívar Ingimarsson segir að byggðastefnan á Íslandi snúist um að beina öllum suður.
Hann segir að sú stefna, sem sé að byggja allt miðlægt upp á höfuðorgarsvæðinu, valdi gríðarlegu ójafnvægi í búsetu. Hann bendir á að um 80 prósent landsmanna búi á svæðinu frá Borgarnesi að Selfossi. Á Austurlandi búi rétt um 3 prósent landsmanna.
„En það eru ekki bara ákvarðanir fólks fyrir sunnan sem eru vandamálið. Vandinn er líka hjá okkur sem hér búum. Hingað til höfum við ekki búið okkur til framtíðarsýn fyrir Austurland. Framtíðarsýn sem við getum sameinast um að berjast fyrir að verði að veruleika,“ skrifar Ívar í grein sem hann birti í Austurfrétt.
Því næst lýsir Ívar draumalandi Austurlandi, framtíðarsýn hans á uppbyggingu á Austurlandi.
Austurland yrði eins og hverfi í Reykjavík
„Draumalandið Austurland er níu þúsund manna kjarnasvæði á mið Austurlandi tengt saman með Samgöngum. Draumalandið Austurland er orðið nægilega stórt og sterkt til að keppa um fólk og fyrirtæki og vaxa enn frekar. Mið-Austurland nærir nærliggjandi byggðir og sveitir. Þjónusta á einum stað verður þjónusta allra staðanna, aðstaða hvers staðar verður aðgengileg öllum. Íbúi á Egilsstöðum getur sótt sér þjónustu með einföldum hætti í Neskaupstað og öfugt með því að keyra á öruggum, heilsárs-, láglendisvegi.“
Ívar segir að draumalandið Austurland sé eins og hverfi í Reykjavík „þar sem fólk býr í Grafarvogi en vinnur út á Granda og sækir íþróttir í Vesturbæinn.“ Í þannig draumalandi skipti minna máli hvar einstaklingur búi, því þeir hafi alltaf aðgengi að grunnþjónustu.
Byggðarkjarninn á Austurlandi er of lítill til að bjóða íbúum upp á allt sem vantar að sögn ívars. Því flytji ung fólk burt til að sækja í aukin tækifæri sem fylgi stærri og fjölmennari íbúasvæðum.
Dreymir um betri samgöngur með afþreyingu og atvinnutækifærum
„Sameiginlega er mikil þjónusta, afþreying og aðstaða á Austurlandi en svo hún nýtist þarf að tengja saman fjölmennustu og sterkustu byggðirnar með Samgöngum. Með því að gera það munu lykilstofnanir og lykilfyrirtæki tengjast betur. Umdæmissjúkrahúsið í Neskaupstað mun tengist alþjóðaflugvellinum á Egilsstöðum, hafnir, ferja og flugvöllur tengjast saman sem opnar á fjölmörg tækifæri til inn- og útflutnings. Verkmenntaskólinn Austurlands og Menntaskólinn á Egilsstöðum munu styrkjast og þetta gefur þeim aukið tækifæri til að veita betri þjónustu og vinna saman. Með þessu væri kominn sterkari grunnur til að koma á háskólanámi í fjórðungnum sem er eitt af lykilatriðum sterks samfélags,“ lýsir Ívar í greininni um framtíðarsýn sína.
„Með Samgöngum tengjast íbúar á Egilsstöðum sterkum atvinnufyrirtækjum í sjávarútvegi og áli með betri og öruggari hætti. Að sama skapi tengjast firðirnir betur opinberri þjónustu og afþreyingu á Héraði og saman myndar þetta öfluga heild sem gefur Akureyri og Eyjarfjarðarsvæðinu ekkert eftir.“
Ívar vill að mið Austurland yrði áfangastaður fyrir ferðamenn en ekki stoppistöð. Það yrði gert með hringtengingu á mið Austurlandi. „Með slíkri hringtengingu væri einnig búið að auka möguleika Egilsstaðaflugvallar sem virks millilandaflugvallar til muna.“
Vannýtt aðstaða og þjónusta
Í draumalandi Ívars myndi betra aðgengi fjölga störfum um tugi eða hundruð á sjálfbæran hátt og virka sem segull á unga fólkið.
„Verslunin á Norðfirði er ekki lengur verslun fyrir 1400 íbúa heldur hafa 9000 manns gott aðgengi að henni. Með stærra markaðssvæði opnast möguleikar á að halda úti öflugra félagsstarfi og afþreyingu. Betri grundvöllur fyrir kvikmyndahús, leikhús eða hverju öðru sem fjölmennari svæði geta boðið uppá og við sækjum í miklum mæli norður eða suður. Þetta mun virka sem segull á unga fólkið okkar, að flytja aftur heim til að nýta þau tækifæri sem hér eru.“
Að sögn Ívars er Austurland í dag ekki ein held. Byggðarkjarnar eru smáir, dreifðir og illa tengdir og því langt frá draumalandinu Austurlandi.