Undanfarnar vikur hafa verið unnin mikil skemmdarverk á Leikskólanum Rofaborg í Árbænum. Á bæði lóð og húsi skólans. Rúður hafa verið brotnar reglulega ásamt útileikföngum, en í eitt skiptið var reynt að kveikja í hluta þeirra. Að sögn foreldrar barna á Rofaborg eru orðin mjög þreytt á ástandinu þar sem börn þeirra þurfa að vera í myrkruðum herbergjum þar sem nánast engir gluggar eru eftir á sumum deildum leikskólans Í vikunni voru svo framin stærstu skemmdarverkin hingað til en þá voru 10 rúður brotnar á einum degi. Þá var einnig þakklæðning rifin upp.
Flest verða skemmdarverkin á frídögum og hafa börnin sjálf reynt að skilja eftir skilaboð fyrir skemmdarvargana að biðja þá um að hætta að skemma leikskólann sinn.
„Þau skilja ekki að það skuli virkilega vera til fólk sem vill skemma leikskólann þeirra,“
segir Guðlaug Kristinsdóttir á facebook.
Engar öryggismyndavélar eru á leikskólanum og hafa foreldrar kvartað ítrekað undan úrræðaleysi Reykjavíkurborgar að ekki sé búið að setja upp myndavélar. Hafa nú foreldrar leikskólabarna á Rofaborg sett af stað söfnun sjálf til að borga fyrir myndavélabúnað. Telja foreldrarnir að ef myndavélar séu á staðnum myndi það ákveðin fælingarmátt og minnki mögulega skemmdarverkin.