Íþróttir skila 4 milljörðum í gjaldeyri

\"Umfang íþrótta í íslensku samfélagi er gífurlegt og hagrænt gildi þeirra mjög mikið,\" segir Þorólfur Þórlindsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands sem unnið hefur áfangaskýrslu um umfang og hagræn áhrif íþrótta í íslensku samfélagi.

Rætt er við prófessorinn í Morgunblaðinu í dag, en téð skýrsla verður kynnt á málþingi í Laugardalshöll á morgun þar sem stjórnvöld, ÍSÍ og Háskóli Íslands kasta boltanum á milli sín í umræðu um þátt íþrótta í samfélaginu.

Þórólfur metur það svo að beinar gjaldeyristekjur af íþróttum séu nálægt fjórum milljörðum króna og að óbeinar séu verulegar. Stóran hluta þessara tekna megi rekja beint til íslensku knattspyrnunnar.

Hann bendir á að vaxtarmöguleikar íþróttastarfsins séu miklir og tækifærin óþrjótandi. þar spili alþjóðavæðing íþróttanna stóran þátt og íþróttatengd ferðamennska ekki síður, eins og hann kemst að orði við Morgunblaðið í dag.