Ítalir kyrrsettu „ljótu“ lúxussnekkjuna í refsiskyni

Lúxussnekkja sem vakti athygli á Íslandi síðastliðið sumar hefur verið kyrrsett af ítölskum yfirvöldum en eigandi hennar, rúss­neski millj­arðamær­ingurinn Andrei Melnichen­ko sæt­ir nú refsiaðgerðum vegna stríðsreksturs Rússa í Úkraínu.

Bandaríski fjölmiðillinn CNN greinir frá þessu.

Snekkjan hefur verið kyrrsett í hafnarborginni Triest í norðausturhluta Ítalíu, stutt frá landamærum Króatíu.

Snekkjan sem er 142 metrar að lengd og ein af stærstu snekkjum heims, er talin vera nálægt 600 milljóna dollara virði. Flestum Íslendingum bar þó saman um að skipið væri með þeim ljótari sem sést hafa við Íslandsstrendur.

Lesendur geta myndað sér skoðun með skoðun myndbandsins hér fyrir neðan.

Nafn snekkj­unn­ar er Sailing Yacht A og var henn­i hleypt af stokk­un­um árið 2017 og er skráð á Berm­úd­a­eyj­um.. Hún er auk segls búin vél sem knýr hana á­fram. Hún er tal­in stærst­a segl­skút­a í eink­a­eig­u sem knú­in er jafn­framt með mót­or.

Melnichenko var settur undir efnahagsþvinganir af hálfu Evrópusambandsins þann 9. Mars og í ákvörðun framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins er Melnichenko einn 36 viðskiptajöfra sem hittust á fundi með Pútín Rússlandsforseta eftir innrásina í Úkraínu til að ræða viðbrögð við refsiaðgerðum Vesturlanda. Að mati ESB, sýnir viðvera hans á fundinum að hann sé í innsta hring forsetans og styðji eða hjálpi við að stuðla að aðgerðum sem ógna sjálfstæði og öryggi úkraínsku þjóðarinnar.