Nýr þróttur í forza italia

Ítalir kusu í sveitarstjórnakosningum í gær. Einkum náðu tvö framboð eftirtektarverðum árangri í þessum kosningum. Þau eru Norðurbandalagið og Fram á við Ítalía eða Forza Italia. Þessir flokkar eru í venjubundini merkinu mið-hægri flokkar. Lokatölur voru ekki kunnar þegar þetta var skrifað.

Einkum var stjórnmálaskýrendum á Ítalíu umhugað um að túlka úrslitin í borgin Genúa á Norður-Ítalíu en kjósendur þar hafa í rúm fimmtíu ár fremur kosið vinstri flokka. Nú varð á þessu breyting. Mið-hægri flokkar fá ein 54% greiddra atkvæða en fengu áður fyrr röks 45% ef þá það.

Þessi úrslit gætu verið vísbending um víðtæk afstöðuskipti frá mið-vinstri viðhorfum yfir til mið-hægri viðhorfa. Rúmar fjórar milljónir Ítalía í 110 sveitarstjórnum höfðu kosningarétt í þessum kosningum. Fyrri umferð var hinn 11.júní sl. og sú seinni í gær. Kosningaþátttaka var sérlega dræm um alla Ítalíu eða um 46%.

Framboð lýðhylli 5-Star samtökin hafði ekki erindi sem erfiði. Samtökin voru stofnuð fyrir níu árum. Að þessu sinni vegnaði þeim miður. Samt ber að draga varlega ályktanir um pólitíska strauma og stefnur á Ítalíu eftir þessi úrslit. Kosið var um hreppapólitík - mál heima í héraði - ekki um landsmál.

Þingkosningar ættu að fara fram á næsta ári.  

rtá