Ístak segir upp 56 starfsmönnum

Byggingafyrirtækið Ístak hefur sagt upp 56 starfsmönnum. Þar af eru 31 fastráðinn starfsmaður og 25 starfsmenn sem sinnt hafa verkefnum fyrir fyrirtækið í gegnum starfsmannaleigu og fá ekki endurnýjaðan samning. Karl Andreassen, forstjóri Ístaks, segist vonast eftir því að geta dregið megnið af uppsögnunum til baka en að það fari eftir verkefnastöðu. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag.

Karl segir í samtali við Morgunblaðið að óvíst sé hvort verkefnastaða fyrirtækisins leyfi þann starfsmannafjölda sem fyrirtækið hefur byggt starfsemina á nú þegar sjái undir lok þriggja stórra uppsteypuverkefna. „Við vonumst að sjálfsögðu til að geta dregið megnið af þessum uppsögnum til baka þegar og ef verkefni sem við höfum verið lægstbjóðendur í verða samþykkt og sett í gang,“ segir hann.

Undrast viðbrögð Eflingar

Flestir starfsmannanna sem sagt var upp eru meðlimir Eflingar stéttarfélags. Ístak tilkynnti bæði Vinnumálastofnun og Eflingu um uppsagnirnar og segir Karl að hann undrist viðbrögð starfsmanns Eflingar, Maxim Baru, sviðsstjóra félagssviðs, við tilkynningunni. „Þegar við tilkynntum félaginu þetta var okkur gerð grein fyrir því að þessi ákvörðun kynni að valda því að verkfallsaðgerðum yrði beitt gegn Ístaki. Það er ótrúlegt að þetta skuli vera viðbrögðin þegar við tilkynnum þessa mjög þungbæru ákvörðun, sem enginn tekur létt,“ segir Karl.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir í samtali við við Morgunblaðið að Ístaki hefði ekki verið hótað verkfallsaðgerðum. „Hins vegar er félagið ekki undir neinni friðarskyldu núna. Við teljum Ístak ekki hafa uppfyllt skyldur sínar um samráð við starfsfólk sitt vegna uppsagnanna. Fyrirtæki halda að þau geti fundað með okkur til að fá þann stimpil að þau hafi gert allt rétt, en þannig er það bara ekki.“ Morgunblaðið leitaði eftir skýringu Sólveigar Önnu á því hvað hún ætti við með því að félagið væri ekki undir friðarskyldu en vildi hún ekki útskýra það nánar.