Tillaga Bjarkar Vilhelmsdóttur um að Reykjavíkurborg sniðgangi vörur frá Ísrael verður dregin til baka. Dagur segir að tillagan hafi ekki verið nægilega vel undirbúin og að hann sé sjálfum sér reiður vegna málsins.
Þetta segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í samtali við fréttastofu RÚV, en hann ætlar að breyta tillögunni á þann veg að skýrt fram að borgin muni aðeins sniðganga vörur sem framleiddar eru á hernumdum svæðum: \"Jú, ég hef sagt að það hefði mátt vera miklu skýrar í textanum þótt að hugsunin hafi verið þar. Það er mikilvægt að koma þessu á framfæri. Ég mun leggja til við borgarráð að tillagan eins og hún liggur fyrir verði dregin til baka á meðan við höfum samráð um næstu skref og útfærslu,“ segir Dagur við RÚV. Það sé mikilvægt að öll umræða um mannréttindi sé ekki misskilin. Hann segir tillöguna ekki hafa verið nægilega vel undirbúna.
Hann segir málið ekki hafa verið nægilega undirbúið: \"Ég hef lagt í vana minn að undirbúa stórar ákvarðanir mjög vel og vandlega. Ég skal bara viðurkenna það að ég er sjálfum mér reiður yfir því að þarna tókst ekki til eins og ég hefði viljað. Því miður.“
Hann segir að viðbrögðin við tillögunni hafi verið meiri en búist hafði verið við: \"Ég bjóst við viðbrögðum en ekki svona miklum. Þetta eru mun meiri viðbrögð sýnist mér heldur en þegar Ísland lýsti yfir stuðningi við sjálfstæði Palestínu,“ segir Dagur, en óhætt er að segja að samþykkt borgarstjórnar hafi vakið mikla athygli. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, sagði ákvörðunina fráleita og að hún skaði viðskiptahagsmuni Íslands. Þá hefur Simon Wiesenthal-stofnunin ráðlaggt gyðingum að ferðast ekki til Íslands.
Tillögunni verður væntanlega breytt á borgarstjórnarfundi á fimmtudag.