Björk Vilhelmsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi segir að umdeild samþykkt meirihluta borgarstjórnar um að sniðganga ísraelskar vörur hafi verið ár í undirbúningi og vandlega ígrunduð af lögfræðingum borgarinnar.
Þetta kom fram í viðtalsþættinum Mannamáli í gærkvöld þar sem Björk sagði magnaða lífssögu sína og gerði upp sín pólitísku ár í borgarstjórn, en hún hélt í dag til Palestínu þar sem hún mun gegna hjálparstörfum fram á næsta ár.
Spurð hvort borgin eigi að skipta sér af utanríkismálum segir Björk að borgin eigi altént að skipta sér af mannréttindamálum. Það sé beinlínis gert ráð fyrir því í innkaupastefnu borgarinnar að taka tillit til mannréttinda og skipta ekki við þá aðila sem fari á svig við alþjóðasamþykktir í þeim efnum. Því hafi það verið afskaplega nærtækt að byrja sniðgöngu á innkaupum frá því landi sem hafi oftast fengið á sig dóma fyrir mannréttindabrot, en ekkert annað ríki en Ísrael hafi fengið yfir sig jafn margar ályktanir allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna um alvarleg mannréttindabrot; þingið hafi margsinnis krafist þess að Ísraelsstjórn rífi niður aðskilnaðarmúra á landi Palestínu og láti þegar í stað af landtöku sinni.
Hún segir tillöguna um að sniðganga vörur sem framleiddar eru á landtökusvæðum Ísraela í Palestínu ekki hafa verið kveðjugjöf til sín heldur rökrétt framhald af langri undirbúningsvinnu. Tillagan hafi verið í smíðum á innkaupaskrifstofu borgarinnar í heilt ár og allan þann tíma í skoðun hjá lögfræðingum borgarinnar og því hafi hún verið vandlega ígrunduð.
Og tillagan hafi ekkert með gyðingdóm að gera, enda beri hún virðingu fyrir þeim trúarbrögðum sem öðrum lífsskoðunum fólks um allan heim. Það sé fásinna að borgin sé eitthvert eldfjall haturs eins og talsmenn Ísraelsstjórnar hafi látið í veðri vaka eftir samþykkt tillögunnar. Trú gyðinga sé jafn fögur og önnur uppbyggileg lífssýn, en allt annað megi segja um síonismann sem feli í sér aðskilnað, yfirgang og tilviljanakennt dráp á þúsundum saklausra borgara í innkróuðum afkimum á Gaza og Vesturbakkanum þar sem fólki sé haldið í gíslingu og fái ekki nauðsynlegar vörur til að byggja upp samfélag sitt. Sú stefna hafi ekkert með gyðingdóm að gera.
Hægt er að nálgast viðtalið við Björk í heild sinni eða klippum á hringbraut.is.