Útilokun Reykjavíkurborgar gagnvart Ísraelsríki einu og sér í innkaupastefnu borgarinnar er galin stefna. Þetta kom fram í Vikulokunum á Rás 1 í dag sem Helgi Seljan fréttamaður stýrði.
Einn reyndasti blaðamaður landsins, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, var í hópi gesta þáttarins. Hún sagði málið mjög klaufalegt. Út af fyrir sig sé gott að borgin virði mannréttindi en þau verði að skoða í víðri mynd. Ef borgin hefði áður sent út skilaboð til innkaupastjóra borgarinnar um samræmda stefnu hefði það verið mun betra en farið hafi verið af stað of þröngt og óundirbúið eins og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur viðurkennt. Málinu væri stillt upp sem virðingarvotti við einn stjórnnálamann, Björk Vilhelmsdóttur, sem sat sinn síðasta borgarráðsfund en svona mál væru miklu stærri en svo að slík geðþóttastjórnsýsla væri við hæfi.
„Þetta var galin stjórnsýslumeðferð,“ sagði Þóra Kristín.
Fram kom í Vikulokunum að komist hafi í fréttir að sumir borgarfulltrúar fái ekki köku á afmælisdaginn sinn á fundum og er þá vitnað til skrifa Sveinbjargar Birnu, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins, sem telur sig ekki sitja sið sama borð og aðrir eins og ratað hefur í fréttir. Aðrir borgarfulltrúar fái stærstu ósk sína uppfyllta á síðasta fundi þeirra. Fram kom að sama fólk og hneykslaðist á málsmeðferð Gunnars Braga þegar hann sleit einhiða gagnvart ESB, styddi borgarstjórn Reykjavíkur. Fólk virðist fast í pólitískum skotgröfum.