Brynjar Sigurðarson vöruhönnuður fær hin virtu sænsku Torsten og Wanja Söderberg-verðlaun fyrir árið 2018, samkvæmt frétt RÚV. Verðlaunaféð er rúmar ellefu milljónir íslenskra króna.
Í umsögn dómnefndar segir að verk Brynjars vísi í íslenskan menningararf, frásagnarlistina og fiskveiðar. Hönnun hans tvinni saman fortíð og samtíð með ósviknum hætti. „Geta hans til að vinna með fólki úr öðrum fögum, líkt og sjómenn, kvikmyndagerðarmenn, rithöfunda, tónlistarmenn, fornleifafræðinga og handverksmenn er lykilatriði í öllum verkum hans. Forvitni hans og einlægni mettar hönnunarverkefni hans, sem mætti lýsa sem „norrænni nálgun“ á helstu strauma í evrópskri hönnun.“
Brynjar segir í tilkynningu að verðlaunin séu mikilvæg viðurkenning á störfum hans. „Þetta verður mér hvatning til að halda áfram í því sem ég er að gera.“