Íslenskur læknir sendur í leyfi

Íslenskum lækni sem starfað hefur á Selfossi, konu sem hefur verið ákærð fyrir tilraun til manndráps í Ungverjalandi, hefur verið veitt leyfi frá störfum sínum. Hún hefur starfað á Heilbrigðisstofnun Suðurlands en langt er síðan meint brot kom upp, árið 2012.

Vafi leikur á málsatvikum en læknirinn er sakaður um að hafa byrlað nígerískri konu svefnlyf í mat og barið hana svo með hamri í höfuð. Rúv hefur eftir verjanda konunnar að hún hafi aðra sögu að segja.

Stundin birti frétt í gær þar sem fjölmiðillinn nafngreindi lækninn, sagði konuna nýverið hafa fengið lækningaleyfi og sagði þá í fréttinni að hún væri enn að störfum.

Í tilkynningu sem send var fjölmiðlum skömmu síðar segir Herdís Gunnarsdóttir forstjóri Heilbrigðisstofnunar að stjórn stofnunarinnar hafi ekki verið kunnugt um alvarleika þeirrar ákæru sem nú er komin fram. Í ljósi nýrra upplýsinga hafi verið ákveðið að konunni verði veitt leyfi frá störfum í bili.