Ágústa Guðmundsdóttir prófessor í matvælafræði við Háskóla Íslands sagði ævintýrasöguna að baki PreCold í heilsu- og útivistarþættinum Lífsstíl á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöld, en þar er um að ræða nýjan úða sem unninn er úr ensímum þorsks og fer nú sigurför um heiminn, enda talin vera eina lækningavaran sem sannarlega slær á blessað kvefið.
PreCold hefur verið í sölu á Svíþjóðarmarkaði um hríð og slegið þar svo rækilega í gegn að framleiðendur þess, íslenska fyrirtækið Zymetech hefur vart undan að framleiða vöruna. Sögu hennar má rekja langt aftur eins og Ágústa kom inn á í samtali sínu við Sigmund Erni í gærkvöld, en hún og maður hennar, prófessor Jón Bragi Bjarnason heitinn, byrjuðu að rannsaka virkni þorskensíma fyrir aldarfjórðungi og voru fljótlega sannfærð um að hún gæti gagnast fólki gegn margvíslegum kvillum. Það kom enda á daginn eftir þrotlausar rannsóknir.
Jón Bragi féll frá, langt fyrir aldur fram, í ársbyrjun 2011, en Ágústa hefur haldið merki þeirra hjóna á lofti með glæsilegum árangri; nú síðast fékk fyrirtæki þeirra Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir frumherjastarf sitt.
PreCold er munnúði sem notaður er gegn kvefi, til að draga úr einkennum kvefs og til að stytta tíma kvefeinkenna. PreCold er úðað í kokið þar sem það myndar þunna filmu sem verndar slímhúð koksins gegn veirum úr loftinu. Filman inniheldur virk náttúruleg sjávarensím sem hamla getu veiranna til að bindast við slímhúðina í kokinu og filman dregur þannig úr möguleika veiranna á að valda veikindum. Þannig er talið að PreCold minnki líkurnar á að smitast af kvefi og styttir tíma veikindanna ef það er notað frá upphafi kvefeinkenna.
Þátturinn Lífsstíll er frumsýndur á mánudagskvöldum. Horfðu á þáttin hér: