Íslenskur karlmaður skotinn til bana í noregi – tveir íslendingar handteknir

Fertugur íslenskur karlmaður var skotinn til bana í Mehamn í Finnmörku í Noregi í nótt. Tveir íslenskir karlmenn, 35 ára og 32 ára, hafa verið handteknir vegna málsins og er sá eldri grunaður um að hafa skotið manninn. Allir Íslendingarnir þrír eru búsettir í Noregi. RÚV.is greinir frá.

RÚV hefur heimildir fyrir því að hinn látni og maðurinn sem er grunaður um að hafa orðið honum að bana séu bræður.

Í norskum fjölmiðlum var haft eftir lögreglu að mennirnir tengist en að hún hafi ekki viljað veita frekari upplýsingar um hvernig.

Laust fyrir klukkan hálf sex í morgun barst lögreglunni í Mehamn tilkynning um að maður hafi orðið fyrir skoti. Lögregla kom skömmu síðar á vettvang og fannst maðurinn alvarlega slasaður. Endurlífgunartilraunir báru ekki árangur og var maðurinn því úrskurðaður látinn á staðnum. Mennirnir tveir voru svo handteknir stuttu seinna, eftir að lögreglu hafði verið tilkynnt um bíl í skurði skammt frá Mehamn.