Íslenskur fiskur á svartan lista í bna

Sala á íslenskum fiski til Ameríku kann að vera í uppnámi eftir þá ákvörðun bandarískra stjórnvalda um að setja Atlantshafsþorsk á lista yfir tegundir í hættu vegna ólöglegra og eftirlitslausra veiða. 

Þetta segir Vignir Már Lýðsson, framkvæmdastjóri Instafish í Morgunblaðinu í morgun, en fyrirtæki hans sérhæfir sig í sölu á íslenskum fiski í Bandaríkjunum. Vignir segir að Atlantshafsþorskur sé ekki í útrýmingarhættu og afleiðingar af ákvörðun bandarískra yfirvalda gætu orðið mjög slæmar.

Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir í sömu frétt blaðsins að Bandaríkin séu ört vaxandi markaður fyrir íslenskan fisk. Selt hafi verið fyrir átján milljarða króna á síðasta ári, sem jafi verið tæplega 30% hækkun frá árinu 2014. Hann segir Ísland leiðandi í heiminum þegar komi að ábyrgum og sjálfbærum veiðum. Jens segir að SFS sé í góðu sambandi við sendiráð Íslands í Bandaríkjunum vegna málsins og hafi sótt fundi vegna þess í Boston.