Íslenski ferðavefurinn TripCreator.com hefur hreppt hin virtu WebAward verðlsaun sem besti ferðavefurinn árið 2015. Vefurinn, sem verið hefur í þróun frá 2013 og var opnaður í vor, hefur á stuttum tíma hlotið afar góðar viðtöku að sögn forkólfa hans.
Í tilkynningu frá þeim segir að undanfarið hafi umræða um ferðaþjónustu hér á landinu að miklu leyti snúist um öryggi og umgengni ferðafólks í Íslandsferðum sínum og kallað hafi verið eftir viðbrögðum af hálfu ferðaþjónustufyrirtækja hvað þetta varði.
Þó að megin hlutverk TripCreator sé að hjálpa fólki við að skipuleggja og kaupa ferðir til Íslands þá er mikil áhersla lögð á að vekja athygli á nýjum og áhugaverðum stöðum víða um land og hjálpa fólki þannig að ferðast sem víðast um landið og upplifa nýja og spennandi áfangastaði, segir í tilkynningu vefjarins en þar er jafnframt bent á að nú þegar hafi vefurinn að geyma ítarlegar upplýsingar um yfir 2.000 áhugaverða staði; fossa, fjöll, laugar, vita og kirkjur svo fátt eitt sé nefnt.
Vefurinn leggi einnig mikla áherslu á margvíslega upplýsingagjöf og ábyrgað ferðaþjónustu til þess að hjálpa fólki að ferðast um landið á ábyrgan hátt og kenna því hvernig eigi að umgangast landið og náttúru þess af virðingu. Í því efni megi nefna bæði náttúrutengdar ábendingar og ítarlegar upplýsingar um akstur á íslenskum þjóðleiðum, svo dæmi séu tekin. Þannig stuðli vefurinn að öryggi viðskiptavina sinna á ferðum þeirra um landið og hvetur um leið til ábyrgrar ferðamennsku.