Íslenskum vopnakaupum svipar til sómalíu

Helen María Ólafsdóttir ráðgjafi hjá Þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna UNDP segir að henni hafi þótt það súrrealísk upplifun að fylgjast með byssumálum lögreglunnar á Íslandi.  Á sama tíma var hún að vinda ofan af svipuðu máli í Sómalíu, landi þar sem nánast engir innviðir eru og stjórnsýsla í mýflugumynd. 


Helen María er alþjóðlegur sérfærðingur á sviði spilltrar stjórnsýslu og hefur rannsakað málaflokkinn í þaula frá einni þjóð til annarrar á undanliðnum árum í starfi sínu hjá Sameinuðu þjóðunum. Í þættinum Heimsljósi í gærkvöld, sem er fréttaskýringaþáttur um erlend málefni, sagði hún líkindin milli vopnakaupa íslenskra stjórnalda sem komust í hámæli í vetur og svipaðrar uppákomu í Sómalíu nýverið vera með hreinum ólíkindum. Í báðum tilfellum hafi lögregluyfirvöld efnt til vopnakaupa án þess að leggja til þess nokkrar forsendur, þarfagreiningu eða greiningu á yfirvofandi vá. 


Helen segir nauðsynlegt að hafa skýra og opna ferla sem varða öryggismál. Nauðsynlegt sé að skýrt verklag sé til staðar í stjórnsýslunni og að farið sé eftir reglum og ákvæðum sem liggi fyrir, svo sem aðkomu alþingis og kjörinna fulltrúa í málum sem snúa að þjóðarhag.


Smella hér til að horfa á þáttinn.